Körfubolti

LeBron í umdeildri nýrri auglýsingu - myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
LeBron James.
LeBron James. Nordic Photos / Getty Images

LeBron James tekst á við nýja ímynd sína í nýrri auglýsingu frá Nike þar sem meðal annarra sjálfur Don Johnson kemur við sögu.

James skipti yfir í Miami Heat í sumar eftir að samningur hans við Cleveland Cavaliers rann út. Ákvörðunin þótti umdeild og fannst mörgum hann svíkja sitt gamla félag með þessu.

Sérstaklega vakti það athygli að ákveðið var að gera sérstakan sjónvarpsþátt á ESPN-sjónvarpsstöðinni, The Decision (Ákvörðunin), þar sem James tilkynnti að hann myndi semja við Heat.

Forráðamenn Cleveland munu hafa fengið að vita af þessu aðeins nokkrum mínútum áður en þátturinn fór í loftið.

James spyr í auglýsingunni hvað hann eigi að gera nú en svar Nike er vitaskuld einfalt; "Just do it".

Auglýsinguna má sjá hér.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×