Fótbolti

Khedira um pressuna hjá Real Madrid: Út í hvað er ég kominn?

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Sami Khedira sló kannski í gegn á HM í sumar en hann á enn nokkuð í land með að fóta sig hjá Real Madrid. Hann viðurkennir að pressan sé nálægt því að vera honum ofviða.

Khedira fór frá Stuttgart til Madrídar í sumar.

"Það þarf allt að vera fullkomið," sagði hann við Kicker um lífið hjá Real Madrid.

"Fyrstu vikurnar voru mjög erfiðar. Þegar þú ert í nýju landi hjá nýju félagi og þú talar ekki tungumálið auk þess sem liðið er gagnrýnt harðlega í fjölmiðlum eftir hvern leik veltir maður því fyrir sér í hvað maður er kominn," sagði miðjumaðurinn.

Hann segir þó að hann sé byrjaður í spænskutímum auk þess sem nokkrir liðsfélaga hans kunni ensku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×