Körfubolti

NBA: Artest skoraði flautukörfu og var hetja Lakers

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Anthony Kiedis, söngvari Red Hot Chili Peppers ærðist af fögnuði í nótt eins og leikmenn Lakers.
Anthony Kiedis, söngvari Red Hot Chili Peppers ærðist af fögnuði í nótt eins og leikmenn Lakers. AP
Ron Artest, af öllum mönnum, tryggði Los Angeles Lakers sigur á Phoenix Suns í fimmta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildar NBA í nótt. Lakers leiðir nú einvígið 3-2.

Það trúir því varla nokkur maður að Artest hafi bjargað leiknum, og hugsanlega tímabilinu fyrir Lakers. Þessi skrautlegi leikmaður skoraði sigurkörfuna um leið og leiktíminn rann út, eftir eitt versta skot Kobe Bryant á ferlinum.

Lokamínúturnar voru æsispennandi. Lakers var þremur stigum yfir og í sókn en hitti ekki. Phoenix fór í síðustu sókn sína og átti þrjú þriggja stiga skot í sömu sókninni, freistuðu þess að jafna metin.

Það þriðja fór loksins ofan í körfuna. Þar var að verki Jason Richardson.

Klukkan sýndi 3,5 sekúndur þegar Lakers tók leiklé og fór í sókn. Það vissu allir hvað myndi gerast, boltinn færi á Kobe Bryant sem myndi skjóta.

Það var og, boltinn barst á Bryant sem var aðþrengdur af tveimur mönnum og í fáránlegri stöðu. Skot hans var enda lélegt, alltof stutt og í sekúndubrot sáu stuðningsmenn Phoenix fyrir sér framlengingu.

En, hver birtist þá nema Artest, fljúgandi undan körfunni og hendir boltanum upp þegar 0,6 sekúndubrot eru eftir. Boltinn skoppaði á körfunni og var varla kominn ofan í þegar leiktíminn var liðinn. 103-101 sigur Lakers niðurstaðan eftir magnaðar lokamínútur.

"Ég veit eiginlega ekki af hverju ég hélt honum inn á fyrir lokasóknina, ég efaðist um það sjálfur," sagði Phil Jackson þjálfari Lakers. "En þarna var hann, og kláraði leikinn."

Kobe Bryant skoraði 30 stig fyrir Lakers, tók 11 fráköst og sendi 9 stoðsendingar. Ekki langt í þrefalda tvennu þar. Derek Fisher skoraði 22 stig, og Pau Gasol 21 auk 9 frákasta.

Hjá Phoenix var Steve Nash stigahæstur með 29 stig og 11 stoðsendingar, Amare Stoudemire var með 19 stig.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×