Fótbolti

Bikarvandræði Real Madrid halda áfram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Cristiano Ronaldo í leiknum í kvöld.
Cristiano Ronaldo í leiknum í kvöld. Nordic Photos / AFP

Real Madrid gerði í kvöld markalaust jafntefli við C-deildarlið Real Murcia í fyrri leik liðanna í 4. umferð spænsku bikarkeppninnar í kvöld.

Madrídingar hafa ekki unnið bikarinn síðan 2004 og í fyrra féll liðið óvænt úr leik eftir að hafa tapað samanlagt 4-1 fyrir neðrideildarliðinu Alcorcon, einmitt í fjórðu umferð keppninnar.

Jose Mourinho, stjóri Real, stillti upp sterku liði í kvöld en í liðinu voru til að mynda Cristiano Ronaldo, Karim Benzema, Pepe, Sergio Ramos og Iker Casillas.

Madrídingar voru miklu meira með boltann í kvöld en gekk illa að skapa sér almennileg marktækifæri.

Síðari leikurinn fer fram á heimavelli Real Madrid eftir tvær vikur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×