Körfubolti

Er San Antonio tilbúið að fórna Ginobili fyrir Stoudemire?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Amar’e Stoudemire treður boltanum hér í körfuna.
Amar’e Stoudemire treður boltanum hér í körfuna. Mynd/AP

San Antonio Spurs hefur mikinn áhuga á að næla í Amar'e Stoudemire hjá Phoenix Suns og það er skrifað um það í bandarískum fjölmiðlum að forráðamenn Spurs séu að undirbúa það að bjóða Phoenix sterka leikmenn í skiptum fyrir Stoudemire.

San Antonio Spurs er búið að tapa fimm af síðustu sex leikjum og er dottið niður í sjötta sætið í Vesturdeildinni. Liðið er búið að vinna 25 leiki og tapa 18 leikjum á tímabilinu.

San Antonio Spurs er búið að vinna fjóra NBA-meistaratitla frá og með árinu 1999 en Tim Duncan er farinn að eldast og þarf greinilega meiri hjálp inn í teig ætli liðið að eiga eitthvað í lið eins og Los Angeles Lakers. Richard Jefferson og Antonio McDyess komu til Spurs fyrir tímabilið en hafa ekki náð að hjálpa liðinu sem skildi.

Argentínumaðurinn Manu Ginobili hefur oft spilað betur með Spurs en í vetur og meðalskor hans er komið niður í 12,8 stig í leik eftir að hafa verið 15,5 stig í leik í fyrra og 19,5 stig að meðaltali fyrir tveimur árum.

Það gæti þó orðið erfitt að fórna Ginobili sem hefur oft gert útslagið í jöfnum leikjum liðsins með fjölhæfni sinni og klókindum.

Samningur Manu Ginobili rennur út í sumar og þá getur Amar'e Stoudemire líka losnað út úr sínum samningi. Þeir eru því líklegir til að næla sér í góða samninga næsta sumar en fram að þeim tíma er ekki úr myndinni að þeir reyni fyrir sér á nýjum stöðum.

Hvað sem gerist er ljóst að mikið verður örugglega mikið skrifað um málið í bandarískum fjölmiðlum þar til að félagsskiptaglugganum lokar



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×