Körfubolti

Haslem tekinn með maríjúana í fórum sínum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Haslem hér í leik gegn Boston.
Haslem hér í leik gegn Boston.

Udonis Haslem, framherji Miami Heat, er ekki í góðum málum eftir að hann var handtekinn í gær með maríjúana í fórum sínum.

Haslem var stöðvaður fyrir of hraðan akstur og lögreglumaðurinn sem stöðvaði hann fann kannabislykt í bílnum.

Hann ákvað því að skoða bílinn betur og þá kom í ljós að Haslem var með poka af kannabis í bílnum. 20 grömm nánar tiltekið.

Hámarksrefsing fyrir þetta brot er 5.000 dollara sekt og fimm ára fangelsi.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×