Fótbolti

Real Madrid æfir fyrir luktum dyrum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

José Mourinho, þjálfari Real Madrid, er greinilega orðinn þreyttur á ágangi fjölmiðla því hann ætlar að loka fyrir aðgang fjölmiðla að æfingum félagsins fram yfir næsta leik liðsins.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Mourinho beitir þessari taktík en hann gerði slíkt hið sama hjá Chelsea og Inter.

Leikmenn Real munu ekki bara æfa fyrir luktum dyrum því þeim hefur einnig verið bannað að tjá sig við fjölmiðla fyrr en eftir leik helgarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×