Fótbolti

Veit ekki hvort Guardiola sé hræddur við mig

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Svíinn Zlatan Ibrahimovic segir að Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, hafi eyðilagt draum sinn um að spila áfram á Camp Nou.

Zlatan mun skrifa undir samning við AC Milan á morgun en þangað var hann sendur þar sem hann gat ekki lengur unnið með Guardiola. Þeir hafa ekki talast við í hálft ár.

"Þegar ég labba inn í herbergi þá labbar Pep út. Ég veit ekki hvort hann er hræddur við mig," sagði Zlatan.

"Hann er heimspekingurinn sem hefur eyðilagt draum minn að spila áfram með Barcelona. Þjálfarinn vildi ekki hafa mig hjá félaginu og ég vildi því ekki eyða tímanum í vitleysu. Ég vil enduruppgötva ást mína á fótbolta með nýju félagi."

Þegar Zlatan var spurður af því af hverju samband hans og Pep væri svona slæmt svaraði hann:

"Þið verðið að tala við hann. Vandamálið lá hjá honum og ég veit ekki hvað það var."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×