Körfubolti

Önnur þáttaröð af áskorendakeppni Shaquille O'Neal

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Shaquille O'Neal.
Shaquille O'Neal. Mynd/AFP
Sjónvarpsstöðin ABC hefur ákveðið að gera aðra þáttaröð með körfuboltamanninum Shaquille O'Neal en þættirnir sem heita "Shaq Vs." sýna NBA-tröllið skora á fræga íþróttamenn í þeirra íþróttagrein.

Meðal þeirra sem Shaquille O'Neal keppti við í fyrstu þáttaröðinni voru ameríski fótboltamaðurinn Ben Roethlisberger hjá Steelers, sundmaðurinn Michael Phelps og boxarinn Oscar De La Hoya.

Shaquille O'Neal segist vera byrjaður að tala við fræga íþróttamenn um að taka áskorun sinni en það hefur ekkert verið ákveðið enn.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×