Tíska og hönnun

Valentino yngir upp

Pífur og blúndur voru einkar áberandi í fatnaði Piccioli og Chiuri.
Pífur og blúndur voru einkar áberandi í fatnaði Piccioli og Chiuri.

Tvíeykið Pier Paolo Piccioli og Maria Grazia Chiuri hefur heillað tískuheiminn upp úr skónum að undanförnu en þau hanna undir merkjum tískurisans Valentino.

Á síðustu tískusýningu sinni í París nýverið sýndu þau flíkur fyrir vor og sumar 2011. Þar undirstrikuðu þau þá nýju stefnu sem þau hafa markað fyrir tískuhúsið.

Ætlunarverk þeirra virðist hafa tekist en yngri konur hafa nú fallið fyrir hinum klassíska Valentino.















Klassískt en þó nýstárlegt og unglegt.





Settlegur kjóll með mjóu belti.





Ætlunarverk Valentino hefur heppnast en með ráðningu Piccioli og Chiuri hefur hann náð til yngri markhóps.



Settlegur jakki með pífum við flottar stuttbuxur.



Einkar margbrotinn útsaumur og vandaður saumaskapur vakti athygli.

Svartur skyrtukjóll, pífum skreyttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×