Fótbolti

Zlatan hefur ekki skemmt stemninguna í búningsklefanum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Carles Puyol, fyrirliði Barcelona, segir að stemningin í búningsklefa félagsins sé fín þó svo framherjinn Zlatan Ibrahimovic tali ekki við þjálfara félagsins, Pep Guardiola.

"Ég held að Zlatan og þjálfarinn hafi sagt það sem þarf að segja í þessu máli. Zlatan er félagi sem leggur sig fram á æfingum," sagði Puoyl.

"Það getur allt gerst í fótbolta og við vitum að hann gæti farið til Milan. Við verðum að bíða og sjá hvað gerist. Ég er á því að Zlatan sé einn besti framherji heims.

"Það er fín stemning í klefanum og hurðin hjá Pep er alltaf opin ef menn vilja spjalla."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×