Lífið

Anita Briem í hryðjuverkamynd

Anita Briem mun leika á móti Shirley Knight í nýrri spennumynd. Knight þessi hefur verið tilnefnd tvívegis til Óskarsverðlauna, sjö sinnum til Emmy-verðlauna og þrívegis til Golden Globe.
Anita Briem mun leika á móti Shirley Knight í nýrri spennumynd. Knight þessi hefur verið tilnefnd tvívegis til Óskarsverðlauna, sjö sinnum til Emmy-verðlauna og þrívegis til Golden Globe.
Íslenska leikkonan Anita Briem mun leika stórt hlutverk í kvikmyndinni Elevator eða Lyftunni. Myndin segir frá níu einstaklingum sem lokast inni í lyftu og vita að einn þeirra er með sprengju.

Myndin er byggð á handriti eftir Marc Rosenberg og skartar meðal annars hinni margverðlaunuð leikkonu Shirley Knight. Þó yngri kynslóðin kannist ef til vill ekki við hana þá hefur Knight tvívegis verið tilnefnd til Óskarsverðlauna, annars vegar fyrir kvikmyndina Top of the Stairs frá árinu 1962 og Sweet Bird of Youth sem var gerð tveimur árum seinna og skartaði Paul Newman í aðalhlutverki. Shirley hefur jafnframt verið sjö sinnum tilnefnd til Emmy-verðlauna, meðal annars fyrir leik sinn í Aðþrengdum eiginkonum árið 2006. Hún hlaut þau hins vegar fyrir leik í NYPD Blue og Thirtysomething, þáttaraðir sem nutu mikilla vinsælda hér á landi. Þá hefur Knight verið tilnefnd í þrígang til Golden Globe-verðlaunanna og vann þau árið 1996 fyrir leik sinn í sjónvarpsmyndinni Indictment: The McMartin Trial.

Greint er frá framleiðslu myndarinnar á vefnum Broadway World. Þar má sjá aðra leikara myndarinnar sem flestir hafa getið sér gott orð fyrir sviðs- og sjónvarpsleik og jafnan brugðið fyrir í stórmyndum sem aukaleikarar. Nægir þar að nefna Waleed Zuaiter sem lék meðal annars í Sex and the City 2 og The Men Who Stare at Goats og John Getz en hann má meðal annars finna í kvikmyndinni The Social Network, myndinni um Facebook.- fgg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.