Körfubolti

NBA: Tímamótaleikur hjá Shaq

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Leikmenn Cleveland Cavaliers hefndu í nótt fyrir tapið í annarri umferð gegn Toronto Raptors. Á þeim tíma var Cleveland-liðið enn að komast í gang en það var ekki mikill vandræðagangur á liðinu í gær.

Liðið skoraði 62 stig í fyrri hálfleik. Lokakaflinn var líka sterkur hjá heimamönnum því Raptors skoraði ekki stig utan af velli á síðustu þrem mínútum leiksins.

Cleveland er nú 25-1 þegar liðið skorar yfir 100 stig. Leikurinn var tímamótaleikur fyrir Shaquille O´Neal sem náði þeim áfanga að skora 28.000 stig í NBA-deildinni.

Úrslit næturinnar:

Cleveland-Toronto  108-100

Miami-Indiana  113-83

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×