Lífið

An Education veitir Avatar og Hurt Locker samkeppni

an education Breska myndin An Education fékk átta tilnefningar til Bafta-verðlaunanna, rétt eins og Avatar og The Hurt Locker.
an education Breska myndin An Education fékk átta tilnefningar til Bafta-verðlaunanna, rétt eins og Avatar og The Hurt Locker.

Hollywood-myndirnar Avatar og The Hurt Locker ásamt bresku myndinni An Education fengu átta tilnefningar til bresku kvikmyndaverðlaunanna, Bafta, sem verða afhent í London 21. febrúar.

Geimverutryllirinn District 9 sem sló óvænt í gegn í sumar hlaut sjö tilnefningar. Næstar á eftir henni komu stríðsópus Quentins Tarantino, Inglorius Basterds, og Up in the Air.

Tilnefndar sem besta myndin voru Avatar, The Hurt Locker, Precious, Up in the Air og An Education. Sú síðastnefnda er byggð á samnefndri sjálfsævisögu eftir breska blaðamanninn Lynn Barber. Handritið er eftir Nick Hornby, sem hefur skrifað handritin að About A Boy, Fever Pitch og High Fidelity, og með aðalhlutverkin fara Emma Thompson og Peter Sarsgaard. Myndin fjallar um unglingsstúlku í bresku úthverfi á sjöunda áratugnum sem kynnist helmingi eldri manni.

Tilnefndir sem bestu leikararnir voru Jeff Bridges fyrir frammistöðu sína í Crazy Heart, George Clooney fyrir Up in the Air, Colin Firth fyrir leik sinn í A Single Man, Jeremy Renner fyrir The Hurt Locker og Andy Serkis fyrir Sex & Drugs & Rock & Roll.

Tilnefndar sem bestu leikkonurnar voru Carey Mulligan fyrir hlutverk sitt í An Education, Saoirse Ronan fyrir The Lovely Bones, Cabourey Sidibe fyrir leik sinn í Precious, Meryl Streep sem lék í Julie & Julia og Audrey Tautou fyrir Coco Before Chanel.

Í flokki aukaleikara voru tilnefndir þeir Alec Baldwin, Christian McKay, Alfred Molina, Stanley Tucci og Austurríkismaðurinn Christoph Waltz, sem nýlega fékk Golden Globe-verðlaunin fyrir eftirminnilega frammistöðu sem gyðingaveiðarinn í Inglorious Basterds.

Fimm leikkonur voru tilnefndar í flokki bestu aukaleikkvenna en þær léku í aðeins þremur myndum. Mo"Nique var tilnefnd fyrir Precious á meðan þær Anne-Marie Duff og Kristin Scott Thomas voru tilnefndar fyrir Nowhere Boy, sem fjallar um ævi Johns Lennon, og þær Vera Farmiga og Anna Kendrick fyrir Up in the Air.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.