Tíska og hönnun

Hár greitt til hægri

Jón Jósep Snæbjörnsson söngvari hefur látið toppinn vaxa og greiðir yfir ennið.
Jón Jósep Snæbjörnsson söngvari hefur látið toppinn vaxa og greiðir yfir ennið.

Að greiða til hliðar hefur löngum þótt klassísk sparigreiðsla karlmanna. Þetta árið hefur mikið borið á þykkum lubba, vatnsgreiddum til vinstri á höfðum bæði Hollywood stjarna og tískufyrirsæta og nú eru íslenskir snyrtipinnar einnig farnir að safna hári og greiða yfir ennið.

Fréttablaðið tíndi til nokkrar stjörnur sem vatnsgreiða til vinstri.



Söngvarinn Robbie Williams á sviði með toppinn vel greiddan til hliðar.



George Clooney þykir bera hliðargreiðsluna vel og minnir óneitanlega Hollywood fjórða og fimmta áratugarins þegar Cary Grant og Humphrey Bogart voru upp á sitt besta.



Mynd/AFP

Karlfyrirsæta strunsar niður sýningarpall í París síðasta sumar með vatnsgreitt til vinstri.



Brad Pitt hefur oft gripið til þessarar klassísku greiðslu á hátíðar­stundum. Hér er hann á rauða dreglinum með Angelinu Jolie.



Mynd/Nordicphotos-Getty

Michael Urie sem leikur hinn óborganlega Mark í þáttunum Ugly Betty reynir að hemja krullurnar til hliðar..



Ásgrímur Már Friðriksson fatahönnuður kann tökin á greiðunni og hemur lokkana út á aðra hlið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×