Körfubolti

Atlanta réð ekkert við Dwight Howard

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Orlando Magic er komið í 2-0 gegn Atlanta Hawks í rimmu liðanna í undanúrslitum Austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta. Orlando vann annan tiltölulega auðveldan sigur í nótt, 112-98.

Orlando náði 19-2 rispu í fjórða leikhluta sem var meira en Atlanta réði við. Maður leiksins var þó Dwight Howard sem skoraði 29 stig og tók 17 fráköst á 39 mínútum sem er það langmesta sem hann hefur spilað í úrslitakeppninni enda ekki óvanur því að vera í villuvandræðum.

Vince Carter átti einnig fínan leik með 24 stig og 7 fráköst. Magic er nú búið að vinna 6 leiki í úrslitakeppninni í röð.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×