Gagnrýni

Harður og mjúkur pakki

Freyr Bjarnason skrifar
The Thief's Manual með Cliff Clavin.
The Thief's Manual með Cliff Clavin.
Tónlist

The Thief"s Manual

Cliff Clavin

Cliff Clavin er á meðal efnilegustu rokksveita landsins og hafa lög hennar hljómað með reglulegu millibili á X-inu. Sveitin var stofnuð í Garðabæ fyrir fjórum árum og mætir nú með sína fyrstu plötu.

Upphafslagið Mine Has the View er þrusu rokkari í anda Korns og Mínuss sem vekur upp ákveðnar væntingar um framhaldið. Þær væntingar standast ekki alveg því flest lögin sem á eftir koma eru heldur mýkri, þó að mörg séu þau vel frambærileg. Best eru hin rokkuðu This Is Where We Kill More Than Time og Midnight Getaways, auk þess sem The Thief"s Manual og Shake Hands eru nokkuð góð.

Gítarleikurinn á plötunni er víða flottur og hljómurinn fágaður, en kannski einum of á köflum. Hinn hrái hljómur upphafslagsins hefði alveg mátt fá að njóta sín oftar og menn hefðu mátt sleppa meira fram af sér beislinu. Sem sagt, ágæt rokkplata sem sýnir að Cliff Clavin hefur það sem til þarf. Strákarnir kunna að rokka en vonandi verður rokkið aðeins harðara á næstu plötu.

Niðurstaða: Rokkið mætti vera harðara á annars ágætum frumburði Cliff Clavin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×