Fótbolti

Mourinho er alveg sama þó hann spili á mánudegi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Það eru margir ósáttir við að stórslagur Barcelona og Real Madrid muni fara fram á mánudegi. Það truflar José Mourinho, þjálfara Real Madrid, nákvæmlega ekki neitt.

Ástæðan fyrir þessari tímasetningu eru kosningar í Katalóníu sem fara fram helgina sem leikurinn átti að vera spilaður.

"Ég vissi af þessu fyrir löngu síðan en mér var alveg sama. Ég vissi þetta því ég veit hverjir stýra leiknum. Ef menn skoða yfirlýsingar þessara manna þá skilja þeir af hverju þessi ákvörðun var tekin," sagði Mourinho og gaf í skyn að það væru áhrifamenn innan Barcelona sem hefðu náð þessari breytingu í gegn.

"Barcelona vildi ekki spila á laugardegi því þeir eru að spila í Meistaradeildinni. Þess vegna þurfum við að spila á mánudegi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×