Viðskipti innlent

Krónan er ávísun á gjaldeyrishöft í áratug

Frummælendur og gestir á morgunverðarfundi Arion Banka.
Frummælendur og gestir á morgunverðarfundi Arion Banka. Mynd/GVA

Ætli Íslendingar að halda í krónuna er ólíklegt að gjaldeyrishöft verði afnumin á næstu fimm til tíu árum. Í skugga þeirra verður að endurbyggja íslenska myntsvæðið með lágu raungengi og lítilli einkaneyslu, að sögn Ásgeirs Jónssonar, forstöðumanns greiningar Arion Banka.

Ásgeir var með erindi á morgunverðarfundi Arion Banka í morgun um gjaldeyrishöft og framtíð krónunnar.

Hann sagði inngöngu landsins inn í myntbandalag Evrópu nauðsynlegan hluta af aðildarviðræðum stjórnvalda við Evrópusambandið. Í kjölfarið taki við eitthvað form fastgengisstefnu við evruna. Ólíklegt sé hins vegar að krónan verði sett á flot.

„Það er vafamál hvort að krónan muni fljóta aftur á næstu 5-10 árum, haldi hún áfram að vera til, og einhver tegund af höftum mun verða nauðsynlegt böl á íslenskum gjaldeyrismarkaði," sagði hann.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×