Lífið

Kærastan kúgar Johnny

flengdur Johnny Depp leitar að leið út úr mynd með Angelinu Jolie.
flengdur Johnny Depp leitar að leið út úr mynd með Angelinu Jolie.

Þegar Angelina Jolie og Brad Pitt léku saman í kvikmyndinni Mr. and Mrs. Smith stal hún honum frá Jennifer Aniston. Núna er Angelina Jolie að fara að leika í The Tourist með Johnny Depp og kærastan hans er ekki sátt.

Samkvæmt dagblaðinu New York Post ætlar Vanessa Paradis, kærasta Depps, ekki að missa hann. Þegar hún frétti að Depp og Jolie ættu að leika í kynlífssenu sagði hún hingað og ekki lengra. Hún sagði kærastanum að finna nýja mynd til að leika í.

Samkvæmt heimildum New York Post er Depp að reyna að komast undan því að leika í myndinni. Brad Pitt og Leonardo DiCaprio eru orðaðir við hlutverk hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.