Körfubolti

Kobe tryggði Lakers titilinn og sæti í úrslitunum

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Á flugi - Kobe Bryant var magnaður.
Á flugi - Kobe Bryant var magnaður. AP

Kobe Bryant átti stórleik þegar Los Angeles Lakers tryggði sæti sitt gegn Boston Celtics í úrslitarimmunni um NBA-titilinn í nótt. Lakers lagði Phoenix Suns 111-103 og er þar með meistari í Austurdeild NBA.

Staðan var 37-34 eftir fyrsta leikhluta en Lakers seig fram úr fyrir hálfleik. Þar var staðan 65-53. Sigur Lakers var nokkuð öruggur þrátt fyrir áhlaup Suns í lokaleikhlutanum. Niðurstaðan góður 111-103 sigur Lakers.

"Markmiðið er að vinna titilinn. Celtics er fyrir okkur," sagði Kobe eftir leikinn.

Kobe skoraði sem fyrr segir 37 stig, Ron Artest skoraði 25 en aðrir mun minna.

Hjá Sun var Amare Stoudemire stigahæstur með 27 stig, Steve Nash skoraði 21.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×