Fótbolti

Kærður fyrir kynferðislega áreitni og missti starfið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik Mallorca og Real Madrid.
Úr leik Mallorca og Real Madrid.

Forseti spænska úrvalsdeildarliðsins Mallorca, Josep Pons, hefur tímabundið verið vikið úr starfi í kjölfar ásakana um kynferðislega áreitni.

Pons var áður sendiherra Spánverja í Austurríki. Kona sem vann í sendiráðinu hefur nú kært Pons fyrir kynferðislega áreitni og það varð þess valdandi að hann missti starfið. Í bili að minnsta kosti.

Pons er allt annað en sáttur við þau málalok og heldur fram sakleysi sínu í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×