Lífið

Fulltrúar Top Shop á leið til Íslands

njósnað Fulltrúar frá útibúi Top Shop í London hafa boðað komu sína á Reykjavik Fashion Festival. Þeir ætla að sitja á fremsta bekk á föstudagskvöld þegar E-label sýnir sitt nýjasta. 
Fréttablaðið/anton
njósnað Fulltrúar frá útibúi Top Shop í London hafa boðað komu sína á Reykjavik Fashion Festival. Þeir ætla að sitja á fremsta bekk á föstudagskvöld þegar E-label sýnir sitt nýjasta. Fréttablaðið/anton

Fulltrúar frá útibúi Top Shop í London eru væntanlegir til Íslands í tengslum við Reykjavik Fashion Festival. Þeir ætla að mæta á sýningu íslenska tískuvörumerkisins E-label í Kaaber-húsinu á föstudagskvöldið. Ásta Kristjánsdóttir, einn af eigendum E-label, staðfestir þetta í samtali við Fréttablaðið.

„Vonandi sjá þeir einhverja fleiri hönnuði til að koma á framfæri í verslun sinni," segir Ásta en E-label hefur gert það gott í Top Shop-versluninni þar. Stórstjarnan Beyonce Knowles gerði sér meðal annars ferð í verslunina ekki alls fyrir löngu og keypti þá leggings frá merkinu.

Ásta segir mikla stemningu fyrir Reykjavik Fashion Festival, um hundrað og fimmtíu manns leggi nú nótt við dag við undirbúninginn og flestir þeirra eru í sjálfboðavinnu. „Ég held að það hafi sjaldan eða aldrei verið jafnmikil gróska í íslenskri hönnun og þetta er rétti tíminn til að koma henni á framfæri," segir Ásta. Fjöldi erlendra blaðamanna hafa boðað komu sína á hátíðina enda mikill áhugi á því sem fram fer á Íslandi um þessar mundir vegna efnahagskreppunnar frægu. „Facehunter, tískubloggarinn frægi, ætlar að koma sem og blaðamenn frá Dazed and Confused, Observer og breska Elle," útskýrir Ásta.

Heilmikil tónlistarhátíð er haldin í kringum tískuhátíðina og hefst hún á fimmtudagskvöldið. Mesta spennan er þó eflaust fyrir komu kanadísku tónlistarkonunnar Peaches en hún hefur, að sögn Ástu, valið sér eina átta kjóla til að koma fram í. Nánari upplýsingar um hátíðina má finna á heimasíðunni rff.is. - fgg

RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.