Körfubolti

Heather besti leikmaðurinn og Ágúst besti þjálfarinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Heather Ezell hefur spilað frábærlega með Haukum í vetur.
Heather Ezell hefur spilað frábærlega með Haukum í vetur. Mynd/Vilhelm
Körfuknattleikssamband Íslands verðlaunaði í dag þá leikmenn Iceland Express deild kvenna sem stóðu sig best í seinni hluta deildarkeppninnar. Haukakonan Heather Ezell var valin besti leikmaðurinn og Ágúst Björgvinsson, þjálfari Hamars, var valinn besti þjálfarinn.

Heather Ezell og Signý Hermannsdóttir eru einu leikmennirnir í úrvalsliðinu sem voru líka í úrvalsliði fyrri hlutans sem var valinn í ársbyrjun.



Verðlaun fyrir seinni hluta Iceland Express deildar kvenna:


Úrvalsliðið:

Heather Ezell, Haukum

Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, KR

Birna Valgarðsdóttir, Keflavík

Helga Hallgrímsdóttir, Grindavík

Signý Hermannsdóttir, KR

Besti leikmaður:

Heather Ezell, Haukum

Besti þjálfari:

Ágúst Björgvinsson, Hamar

Dugnaðarforkurinn:

Julia Demirer, Hamar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×