Körfubolti

Carmelo Anthony vill fara til annaðhvort Chicago eða New York

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Carmelo Anthony.
Carmelo Anthony. Mynd/GettyImages
Carmelo Anthony er enn að leita leiða til þess að losna frá Denver Nuggets þrátt fyrir að forráðamenn Denver vilji ekki láta hann fara. Samkvæmt nýjustu fréttum af málunum vill Anthony helst komast til Chicago Bulls eða New York Knicks.

Carmelo Anthony er einn allra besti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta en hann kom inn í deildina á sama tíma og LeBron James og Dwyane Wade. Anthony hefur skorað 24,7 stig að meðaltali á sjö tímabilum sínum í deildinni þar af var hann með 28,2 stig í leik á síðasta tímabili.

Chicago Bulls getur boðið Denver betur en New York Knicks og hafa menn eins og Luol Deng, James Johnson og Taj Gibson verið nefndir til sögunnar. New York hefur hinsvegar nóg pláss undir launaþakinu næsta sumar til þess að bjóða honum góðan samning.

Samingur Carmelo Anthony við Denver rennur út næsta sumar en liðið hefur fyrir löngu boðið honum þriggja ára samning upp á 65 milljón dollara. Carmelo Anthony hefur hinsvegar ekki viljað skrifað undir hann ennþá og vill greinilega komast í burtu.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×