Fótbolti

Barcelona byrjar á öruggum sigri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi og Iniesta voru báðir á skotskónum í kvöld.
Messi og Iniesta voru báðir á skotskónum í kvöld.

Barcelona byrjaði leiktíðina í spænska boltanum vel í dag. Liðið sótti Racing Santander heim og vann öruggan sigur, 0-3.

Lionel Messi kom Börsungum yfir strax á 4. mínútu leiksins. Andrés Iniesta bætti síðan öðru marki við á 31. mínútu.

David Villa er strax byrjaður að borga fyrir sig en hann skoraði þriðja markið á 63. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×