Fótbolti

Aguero mun framlengja við Atletico

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Argentínumaðurinn Sergio Aguero situr að samningaborðinu með Atletico Madrid þessa dagana og nýr þriggja ára samningur er svo gott sem tilbúinn.

Í þessum nýja samningi er áhugaverð klausa sem á eftir að fæla flest stórlið heims frá leikmanninum í bili. Það mun nefnilega kosta 90 milljónir evra að losa leikmanninn undan samningi við félagið.

"Ég hef tjáð félaginu að ég vilji vera hér áfram og þess vegna erum við að framlengja," sagði Aguero sem Chelsea hefur verið að elta í ansi langan tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×