Körfubolti

Yao Ming spilar með Houston í vetur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Læknar Houston Rockets hafa gefið Kínverjanum stóra, Yao Ming, grænt ljós á að spila með félaginu í vetur. Ming missti af öllu síðasta tímabili vegna meiðsla.

"Ég er mjög spenntur fyrir því að byrja aftur. Þetta verður spennandi tímabil og ég held ég geti treyst fætinum til þess að halda," sagði spenntur Ming.

Til þess að sanna að leikmaðurinn væri heill heilsu fór hann í gegnum heila æfingu fyrir framan blaðamenn.

Hann meiddist aðeins á æfingunni og öskraði af sársauka. Hann stóð þó fljótlega upp aftur og kláraði æfinguna.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×