Viðskipti erlent

Hagnaður jókst um 20 prósent

Hollenska fyrirtækið Stork B.V. sem er að 17 prósentum í eigu Eyris Invest, jók rekstrarhagnað sinn um 20 prósent á fyrri helmingi ársins borið saman við árið í fyrra.

Tekjur fyrirtækisins stóðu í stað á tímabilinu, í kringum 803 milljónir evra, sem jafngildir 123,5 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður jókst um 20 prósent í jafngildi rúmlega 12 milljarða króna, og verðmæti pantana fyrirtækisins jókst um 7 prósent, í jafngildi 210 milljarða króna.- mþl










Fleiri fréttir

Sjá meira


×