Lífið

Villi Vill og Anna Lilja eignuðust dreng

Stjörnulögfræðingurinn Vilhjálmur Vilhjálmsson og sambýliskona hans, Anna Lilja Johansen, eignuðust lítinn dreng klukkan ellefu í gærmorgun.

Fæðingin gekk að óskum og heilsast öllum vel. Drengurinn er 49 cm að lengd og 13 merkur að þyngd.

Fjölskyldan heldur heim á leið í Markarflötina í Garðabæ á næstu dögum en þangað flutti hún nýlega úr glæsivillu á Sóleyjargötu. Ásamt litla drengnum býr sex ára gömul dóttir Önnu Lilju hjá þeim. Hana eignaðist hún með Þorsteini M. Jónssyni, Steina í Kók, en þau voru gift í þrjú ár.

Búast má við miklum fögnuði enda eiga þau Vilhjálmur og Anna Lilja marga að. Hún er úr Johansen-fjölskyldunni og hann er sonur Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, fyrrverandi borgarlögmanns.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.