Tónlist

Jónsi fór úr að ofan

Jónsi í engum svörtum fötum.
Jónsi í engum svörtum fötum.
Trúbadorakeppni FM957 fór fram á troðfullum Players í gærkvöldi. Meðal þeirra sem komu þarna fram var hljómsveitin Í svörtum fötum. Jónsi söngvari var í dúndurstuði og þegar ein kona í salnum hvatti hann til að fara úr að ofan tók hann hana á orðinu og vakti það mikla lukku.

Átta atriði komust í úrslit trúbadorakeppninnar. Sigurvegarar voru tríóið Bee on ice, sem er skipað þeim Eggerti Óskari, Baldri Kristjáns og Agli Björgvins. Strákarnir tóku þetta alla leið, voru eins klæddir með gerviskegg og sombrero-hatta.

Það er ekki skrýtið að Bee on ice hafi unnið keppnina miðað við stuðið á þessarri mynd.
Þeir fögnuðu gríðarlega þegar úrslitin voru tilkynnt enda verðlaunin ekki af verri endanum. Þeir fengu flug til Amsterdam og gistingu frá Icelandair, stúdíótíma í Poppvélinni, þriggja mánaða áskrift að Stöð 2 og Stöð 2 Sport, tónlist frá Tónlist.is og fullt af bjór.

Þá má búast við því að Bee on ice eigi eftir að troða aftur upp á Players því hluti af sigurpakkanum var samningur við staðinn. Við bíðum spennt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.