Tíska og hönnun

Haustlína Lacoste

Fallegur grár skyrtukjóll og stórkostleg og hlýleg peysa frá Lacoste.
Fallegur grár skyrtukjóll og stórkostleg og hlýleg peysa frá Lacoste. Myndir/NordicPhotos, Getty

Tvennir tímar mættust í haustlínu Lacoste, sem sýnd var á tískuvikunni í New York. Haustlínan var skemmtileg blanda af diskótímabilinu og fágaðri tísku fjórða áratugarins. Stórar peysur og litríkir jakkar voru á meðal þess sem fyrirsæturnar sýndu er þær gengu eftir sýningarpallinum.

Christophe Lemaire hefur verið aðalhönnuður Lacoste síðustu tíu ár en þetta var síðasta lína hans fyrir merkið. Hann tekur við Hermés-tískuhúsinu af Jean Paul Gaultier og frumsýnir fyrstu línu sína fyrir það næsta vor.

Sýningin var hluti af tískuvikunni í New York, sem heitir opinberlega Mercedes-Benz tískuvikan.

Það mátti einnig sjá áhrif frá tísku fjórða áratugarins í línunni. Karlfyrirsæta klæðist þægilegum og fáguðum jakkafötum.

Fallegur samfestingur og sítt vesti í anda diskótímabilsins.

Þessi græni herrajakki frá Lacoste getur lífgað upp á hvunndaginn.

Christophe Lemaire hefur verið aðalhönnuður Lacoste síðustu tíu ár en þetta var síðasta lína hans fyrir merkið.

Sterkir litir og hrein snið voru meðal þess sem sást í haustlínu Lacoste fyrir veturinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×