Körfubolti

Stern: Þetta gæti orðið eitt af bestu NBA-tímabilum sögunnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David Stern afhendir hér Lebron James styttuna fyrir að vera valinn mikilvægasti leikmaður NBA-deildarinnar.
David Stern afhendir hér Lebron James styttuna fyrir að vera valinn mikilvægasti leikmaður NBA-deildarinnar. Mynd/Nordic Photos/Getty
David Stern, yfirmaður NBA-deildarinnar, segir spennuna sem hefur magnast upp vegna Miami Heat liðsins geti átti mikinn þátt í að áhorfendur eigi möguleika á sjá einn besta körfubolta sem hefur verið spilaður í NBA-deildinni í vetur.

„Við erum að fara, í hreinskilni sagt, inn í okkar besta tímabil en það eru engir góðir og slæmir strákar í boltanum," sagði David Stern spurður út í stjörnuleikmennina LeBron James, Dwyane Wade og Chris Bosh sem hafa fengið harða gagnrýni fyrir að sameinast undir merkjum Miami Heat.

„Að mínu mati munum við fá að sjá einn besta körfubolta sem hefur verið spilaður og það er mjög spennandi og áhugavert að sjá hvernig muni ganga hjá þeim James, Wade og Bosh," sagði David Stern á blaðamannafundi í tengslum við leik Barcelona og Los Angeles Lakers.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×