Körfubolti

Phil Jackson: Við stöndum ekki í því að slá menn eins og Garnett

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Phil Jackson ræðir við Kobe Bryant.
Phil Jackson ræðir við Kobe Bryant. Mynd/AP
Phil Jackson, þjálfari Los Angeles Lakers, hefur verið duglegur að skjóta á andstæðinga liðsins í aðdraganda einvíga þeirra í úrslitakeppninni og hann hefur ekkert látið af þeim sið fyrir úrslitaeinvígið á móti Boston Celtics sem hefst annað kvöld.

„Við leggjum ekki upp með það að berja niður andstæðinginn," sagði Phil Jackson og beindi orðum sínum síðan að framkomu Kevin Garnett í einvíginu á móti Orlando Magic í úrslitum Austurdeildarinnar.

„Kevin Garnett var ítrekað að slá í handlegg Dwight Howard í leik sex og fékk síðan á endanum dæma á sig sóknarvillu. Liðið okkar spilar ekki svona. Við stöndum ekki í því að slá menn," sagði Phil Jackson sem getur unnið sinn ellefta NBA-titil sem þjálfari.

Phil Jackson er nú kominn með lið sitt í lokaúrslitin í þrettánda sinn á ferlinum þar af þriðja árið í röð með lið Los Angeles Lakers.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×