Fótbolti

Liverpool samþykkti tilboð frá Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Argentínumaðurinn Javier Mascherano er væntanlega á leið til Barcelona eftir allt saman en Barcelona hefur loksins komið með tilboð í kappann sem Liverpool hefur samþykkt.

Mascherano er því frjálst að semja við Börsunga um kaup og kjör.

Argentínumaðurinn hefur verið orðaður við Barcelona mjög lengi og gerði sjálfur allt sem hann gat til þess að komast til félagsins. Neitaði meðal annars að spila fyrir Liverpool.

Inter vildi einnig kaupa leikmanninn en sjálfur vildi hann frekar fara til Barcelona og er að verða að ósk sinni.

Heimildarmaður Sky Sports segir að Barcelona greiði 16 milljónir punda fyrir leikmanninn núna og að 6 milljónir punda bætist við síðar þegar Mascherano hefur náð ákveðnum leikjafjölda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×