Fótbolti

Laudrup ráðinn þjálfari Real Mallorca

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Michael Laudrup.
Michael Laudrup. Nordic Photos / AFP

Daninn Michael Laudrup hefur verið ráðinn þjálfari spænska úrvalsdeildarfélagsins Real Mallorca til næstu tveggja ára.

Laudrup lék árum áður með Barcelona og Real Madrid og var síðast rekinn sem þjálfari Spartak Moskvu í apríl í fyrra. Hann var þar áður þjálfari Getafe á Spáni.

Mallorca hefur verið án þjálfara síðan að Gregorio Manzano var rekinn í lok síðasta tímabils þrátt fyrir að Mallorca náði fimmta sæti deildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×