Körfubolti

Kobe Bryant með Lakers í nótt og í beinni á NBATV

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kobe Bryant.
Kobe Bryant. Mynd/Getty Images
Kobe Bryant æfði með Los Angeles Lakers í gær og verður samkvæmt heimildum Los Angeles Times með Lakers-liðinu á móti Golden State Warriors. Kobe missti af síðustu þremur leikjum sem og stjörnuleiknum vegna ökklameiðsla.

Los Angeles Lakers vann alla þrjá leikina sem liðið spilaði án Kobe en hafði tapað 2 af síðustu 3 leikjum með hann innanborðs. Kobe er fjórði stigahæsti leikmaður deildarinnar með 28,0 stig í leik en enginn leikmaður hefur tekið fleiri skot á tímabilinu (1143 í 51 leik).

Leikur Los Angeles Lakers og Golden State Warriors verður í beinni hjá NBATV í nótt en hann hefst klukkan 3.00 að íslenskum tíma.

Á undan leik Lakers og Warriors verður sýndur á NBATV leikur Oklahoma og Dallas sem hefst klukkan 1.00 að íslenskum tíma. Dallas mætir með þrjá nýja leikmenn til leiksins í kvöld.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×