Fótbolti

Zarate orðaður við Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Argentínski framherjinn Mauro Zarate hjá Lazio er á förum frá félaginu og umboðsmaður hans segir að það sé áhugi frá Real Madrid.

Zarate hefur átt erfitt uppdráttar hjá félaginu undanfarið ár og margoft verið orðaður við brottör frá félaginu.

Hann á ekki upp á pallborðið hjá þjálfara félagsins, Edy Reja, og hefur þeim margoft lent saman.

Lazio er sagt ætla að fá Giuseppe Rossi frá Villarreal til þess að fylla skarð Argentínumannsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×