Tónlist

Retro Stefson flogið heim fyrir Listahátíð

Unnsteinn Manuel klikkaði ekki á því að kaupa miða á tónleikana fyrir mömmu sína.
Unnsteinn Manuel klikkaði ekki á því að kaupa miða á tónleikana fyrir mömmu sína.
Opnunartónleikar Listahátíðar verða haldnir í Laugardagshöllinni þann 12. maí. Þar stígur á stokk heitasta númerið í heimstónlistarbransanum í dag, parið Amadou & Mariam frá Malí. Íslenska hljómsveitin Retro Stefson var valin til að hita upp en söngvaranum Unnsteini Manuel Stefánssyni verður flogið heim til landsins fyrir tónleikana.

Hann verður þarna á tónleikaferð um Evrópu með hljómsveitinni FM Belfast en hlakkar mikið til tónleikanna í Laugardagshöll. „Það er mikill heiður fyrir okkur í Retro Stefsson að fá að leika á sama sviði og Amadou & Mariam og leika tónlistina okkar í sjálfri Laugardagshöllinni. Margir í fjölskyldunni og vinir ætla að kíkja á tónleikana, ég er sjálfur búinn að kaupa miða fyrir mömmu," segir Unnsteinn sem heldur aftur út til að spila með FM Belfast eftir tónleikana.

Retro Stefson er á mikilli siglingu þessa dagana. Sveitin spilar með FM Belfast á tónleikum og er að taka upp nýja breiðskífu. Forsmekkur hennar er lagið Mama Angola sem komið í spilun á útvarpsstöðum landsins og gefur tóninn fyrir það sem koma skal á annarri plötu sveitarinnar.

Fáir afrískir tónlistarmenn njóta hylli líkt og Amadou og Mariam. Engin afrísk plata hefur selst jafn vel og Dimance a Bamako, sem þau gerðu árið 2005. Þau hafa einnig hitað upp fyrir Coldplay, Blur og Scissor Sisters, gerðu þemalag HM 2006 í Þýskalandi og koma fram á opnunartónleikum HM í Suður-Afríku í júní.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.