Tíska og hönnun

Ziggie Stardust áberandi hjá Gaultier

Óvenjuleg samsetning efnis og lita kom skemmtilega á óvart.
Óvenjuleg samsetning efnis og lita kom skemmtilega á óvart.
Áberandi munstur í anda Ziggy Stardust.

Allt það sem Jean Paul Gaultier kemur að er fyrirfram vitað að verður einstakt og jafnvel skrítið. Á tískusýningu hans á haustdögum var engin breyting þar á og sló hann upp heljarinnar partíi á tískupöllum Parísarborgar.

Gaultier leitaði á náðir Ziggy Stardust fyrir vor- og sumarlínu sína, en línan var áberandi lík hugarburði Davids Bowie. Hönnun Gaultiers minnti um margt á gleðskap í byrjun áttunda áratugarins með Ziggy Stardust í fararbroddi fyrirsætnanna, sem báru úfna hanakamba í stíl við litskrúðug föt.

Stór og skemmtileg munstur prýddu föt Gaultiers auk áberandi litasamsetningar og oft á tíðum óvenjulegrar samsetningar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×