Körfubolti

Rivers óttaðist að vera með krabbamein í hálsi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Doc Rivers, þjálfari Boston Celtics, var illa brugðið er hann fann eitthvað óeðlilegt í hálsinum á sér. Óttast var að hann væri með krabbamein en sýnataka um helgina leiddi í ljós að svo var ekki.

"Ég verð hér eitthvað áfram," sagði Rivers sem var mikið létt og tilbúinn að gantast með það hversu hræddur hann var. "Ég er viss um að það veldur öllum vonbrigðum að ég sé ekkert að yfirgefa þennan heim."

Rivers fer árlega í krabbameinsrannsóknir og hann segir að það geri sér gott.

Hann mælir með því að allir þjálfarar fari í slíkar rannsóknir og sérstaklega á hálsinum þar sem þjálfarar nota raddböndin ansi mikið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×