Körfubolti

NBA: Oklahoma jafnaði metin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kevin Durant í leiknum í nótt.
Kevin Durant í leiknum í nótt. Mynd/AP
Oklahoma City hefur komið mörgum í körfuboltaheiminum á óvart með því að jafna metin gegn LA Lakers í rimmu liðanna í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta.

Oklahoma City vann fjórða leik liðanna í nótt, 110-89, og jafnaði þar með metin í rimmunni í 2-2.

Sigurinn var eins og tölurnar bera með sér nokkuð öruggur og sáu Kobe Bryant og félagar aldrei til sólar.

Gríðarlega mikil stemning var á leiknum en heimamenn í Oklahoma City voru vel studdir af áhorfendum sem voru búnir að troðfylla höllina.

„Það er svo sem ekki mikið hægt að segja um þennan leik," sagði Phil Jackson, þjálfari Lakers, eftir leikinn. „Þeir bara fóru alveg með okkur. Byrjunin í seinni hálfleikur hjá okkur var afar slæm. Eftir það vorum við alltaf á hælunum."

Nú eru margir sem velta fyrir sér hvort að Oklahoma City geti slegið sjálfa meistarana úr leik strax í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Kevin Durant var sem fyrr stjarna heimamanna með 22 stig. Hjá Lakers náði sér enginn almennilega á strik. Pau Gasol og Andrew Bynum voru með þrettán stig hvor og Kobe Bryant var með tólf.

Næsti leikur liðanna fer fram í Los Angeles og ljóst að bæði lið munu gefa allt sitt í þann leik.

Orlando vann Charlotte, 90-86, og er þar með komið með 3-0 forystu í einvígi liðanna.

Jameer Nelson fór mikinn í liði Orlando og skoraði 32 stig í leiknum. Rashard Lewis var með fjórtán stig og Dwight Howard þrettán.

Hjá Charlotte var Stephen Jackson stigahæstur með nítján stig.

Portland vann Phoenix, 96-87, og er staðan í þeirri rimmu nú jöfn, 2-2.

LaMarcus Aldridge skoraði 31 stig fyrir Portland og Andre Miller fimmtán. Hjá Phoenix var Amare Stoudemire stigahæstur með 26 stig.

Milwaukee vann Atlanta, 107-89, og minnkaði muninn í rimmunni í 2-1.

John Salmons skoraði 22 stig fyrir Milwaukee og Jerry Stackhouse var með sextán. Hjá Atlanta var Joe Johnson með 25 stig.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×