Fótbolti

Maicon við þröskuldinn hjá Real Madrid

Elvar Geir Magnússon skrifar

Brasilíski bakvörðurinn Maicon hjá Inter hefur loks náð samkomulagi við Real Madrid um kaup og kjör. Frá þessu greina spænskir fjölmiðlar.

Samningaviðræður gengu brösuglega fyrir sig og var umboðsmaður leikmannsins harðorður í garð forráðamanna spænska liðsins í viðtali um helgina.

Nú þarf Real Madrid aðeins að ganga frá lausum endum við ítalska félagið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×