Körfubolti

NBA-deildin: Bryant tryggði Lakers sigur gegn Celtics

Ómar Þorgeirsson skrifar

Níu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í gærkvöldi og í nótt og þar bar hæst naumur 90-89 sigur LA Lakers gegn Boston Celtics þar sem enginn annar en Kobe Bryant skoraði sigurkörfuna þegar skammt lifði leiks.

Bryant var stigahæstur hjá Lakers ásamt Andrew Bynum með 19 stig en Rajon Rondo var stigahæstur hjá heimamönnum í Celtics með 21 stig.

Þá hélt Lebron James uppteknum hætti með Cleveland Cavaliers þegar hann skoraði 32 stig í öruggum 114-89 sigri liðsins gegn LA Clippers.

Mesta spennan var þó í leik Houston Rockets og Phoenix Suns en gestirnir í Suns höfðu þar betur 111-115 eftir framlengdan leik.

Úrslitin í nótt:

Boston-LA LAkers 89-90

Cleveland-LA Clippers 114-89

Detroit-Orlando 86-91

New Jersey-Philadelphia 79-83

Toronto-Indiana 117-102

Houston-Phoenix 111-115

Minnesota-New York 112-91

Oklahoma-Golden State 112-104

San Antonio-Denver 89-103









NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×