Fótbolti

Iniesta spenntur fyrir því að fá Özil til Barca

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Spænski miðjumaðurinn Andrés Iniesta er spenntur fyrir því að fá þýska landsliðsmanninn Mesut özil til Barcelona.

Özil hefur verið sterklega orðaður við bæði Barcelona og Man. Utd á síðustu vikum og þar sem Cesc Fabregas kemur ekki til Barca jukust líkurnar á því að Özil færi þangað.

"Ég vissi ekkert hver hann var fyrir HM en ég heillaðist verulega er ég sá hann spila með Þjóðverjum á HM," sagði Iniesta.

"Ég ræð því ekki hvort hann kemur eður ei. Ef hann kemur þá munum við taka vel á móti honum. Ef ekki þá höldum við áfram eins og venjulega."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×