Körfubolti

Williams: Við erum besta lið í heimi

LeBron James þarf að fá meiri hjálp frá félögum sínum ef ekki á illa að fara
LeBron James þarf að fá meiri hjálp frá félögum sínum ef ekki á illa að fara Nordic Photos/Getty Images

Leikmenn Cleveland Cavaliers verða með bakið uppi við vegg í nótt þegar þeir mæta Orlando Magic í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvígi Austurdeildarinnar í NBA.

Orlando hefur yfir 2-1 í einvíginu og getur því komist í algjöra lykilstöðu með sigri á heimavelli sínum í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 00:30 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Cleveland var með besta árangur allra liða í deildarkeppninni í vetur og vann fyrstu tvö einvígi sín í úrslitakeppninni auðveldlega 4-0.

Liðið hefur hinsvegar átt mjög erfitt uppdráttar í einvíginu við Orlando og er í raun aðeins hársbreidd frá því að vera undir 3-0. Aðeins undrakarfa LeBron James fyrir Cleveland um leið og lokaflautið gall í öðrum leiknum kom í veg fyrir það.

Mo Williams, leikstjórnandi Cleveland, lætur sem ekkert hafi í skorist þó Cleveland sé komið í erfiða stöðu í einvíginu.

"Við erum besta lið í heimi og eigum skilið að fá virðingu," sagði Williams á blaðamannafundi. Orlando er gott lið en við erum besta liðið," sagði Williams.

Hann var spurður hvort hann ætlaði þar með að lofa því að Cleveland kláraði einvígið.

"Við vinnum. Við erum undir 2-1 en það er ekki einn maður í liði okkar sem hefur ekki trú á því að við förum í úrslitin. Það verður erfitt, en ef við klárum næsta leik, verðum við komnir með heimavallarréttinn aftur og ég sé okkur ekki tapa tveimur af þremur leikjum í framhaldinu," sagði Williams.

Ef Williams og Cleveland-menn eiga að standa við stóru orðin, er ljóst að bæði hann og félagar hans þurfa að standa sig betur en þeir hafa gert til þessa.

Williams er aðeins með 32% skotnýtingu í einvíginu og LeBron James (41,7 stig að meðaltali í einvíginu) þarf að fá meiri hjálp frá félögum sínum.

"Ég veit að þeir geta spilað betur og þeir vita það sjálfir. Ég ætla ekki að setja pressu á þá. Þeir vita hvað þeir þurfa að gera og þá er bara að klára það," sagði LeBron James.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×