Körfubolti

Howard sektaður fyrir bloggskrif

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

NBA-stjarnan Dwight Howard hjá Orlando Magic hefur verið sektaður um 15 þúsund dollara vegna skrifa um dómara á blogginu sínu.

Skrifin áttu sér stað eftir leik Orlando og Detroit í síðustu viku. Howard fór af velli í leiknum eftir að hafa klárað villukvótann eftir aðeins 16 mínútur.

„Hvernig má þetta vera? Þetta var alveg bilað. Ég var að fá dæmdar fáranlegar villur á mig," skrifað Howard eftir leikinn.

Hann skrifaði einnig að hann hefði ekki spilað svona lítið síðan hann var 10 ára.

„Það sem fer virkilega í taugarnar á mér er að varnarmenn fá að lemja á mér en svo er dæmt á allt sem ég geri."

Það má greinilega ekkert lengur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×