Körfubolti

Westphal tekur við Kings

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Paul Westphal.
Paul Westphal. Nordic Photos/Getty Images

Sacramento Kings hefur ráðið reynsluboltann Paul Westphal sem næsta þjálfara liðsins. Hann er fjórði þjálfarinn hjá félaginu á fjórum árum.

Westphal er fyrrum leikmaður og þjálfari í deildinni. Hann vann 267 leiki og tapaði 159 sem þjálfari hjá Phoenix og Seattle.

Hann á verk fyrir höndum því Kings vann 17 leiki í vetur en tapaði 65. Það var versti árangur í sögu félagsins.

Westphal hefur lítið verið í þjálfun síðustu ár og hefur aðeins einu sinni verið á bekknum síðan árið 2000. Það var leiktíðina 2007-08 er hann var aðstoðarþjálfari hjá Dallas.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×