Körfubolti

Jason Terry er varamaður ársins

Jason Terry lék til úrslita með Dallas árið 2006
Jason Terry lék til úrslita með Dallas árið 2006 Nordic Photos/Getty Images

Bakvörðurinn Jason Terry hjá Dallas Mavericks verður útnefndur besti varamaðurinn í NBA deildinni á föstudaginn ef marka má frétt í vefútgáfu Dallas Morning News í dag.

Terry fór mikinn með Dallas sem sjötti maður í vetur og skoraði tæp 20 stig að meðaltali í leik. Terry kom inn af bekknum í 63 af 74 leikjum sínum í deildarkeppninni, en Dallas vann 50 leiki og tapaði 32 í vetur.

Dallas háir nú einvígi við granna sína í San Antonio í fyrstu umferð úrslitakeppninnar þar sem staðan er jöfn 1-1 eftir tvo fyrstu leikina í San Antonio.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×