Körfubolti

Van Gundy ætti að halda kjafti

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Wallace er ekki sáttur.
Wallace er ekki sáttur. Nordic Photos/Getty Images

Miðherji Cleveland Cavaliers, Ben Wallace, er allt annað en sáttur við þau ummæli þjálfara Orlando, Stan Van Gundy, að hann væri leikari sem léti sig falla auðveldlega í gólfið.

Van Gundy lét ummælin falla eftir þriðja leik liðanna. Þá sagði Van Gundy að þeir Wallace og Mo Williams féllu oftar í gólfið en ungabörn.

Þegar Wallace var spurður um þessi ummæli Van Gundy sagði Wallace að Van Gundy ætti að halda kjafti og lét nokkur dónaleg orð sem ekki eru birtingarhæf fylgja með.

Þetta er í annað sinn sem Van Gundy kemur fram með slíkar ásakanir í vetur. Hann gagnrýndi nefnilega Shaquille O´Neal fyrir sama hlut fyrr í vetur og baðst síðan afsökunar á orðum sínum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×